Nóttin var að mestu tíðindalaus hjá lögreglunni á Ísafirði. Einn var tekinn fyrir meintan ölvunarakstur og annar vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þá voru minniháttar stympingar en að öðru leyti rólegt í nótt. Enginn gisti fangageymslur á Ísafirði í nótt.
Tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður er nú lokið. Nokkuð margir gestir fóru úr bænum í gær að sögn lögreglunnar og er búist við að margir verði á faraldsfæti í dag og á morgun.