Tugir björgunarsveitarmanna stóðu vaktina við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi um helgina og áætlar Sigurgeir Guðmundsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, að sérhvern dag hafi sínir menn unnið 250 vinnustundir.
Hann segir æskilegt að ríkið mæti á einhvern hátt þeim kostnaði björgunarsveitanna á gosstöðvunum, það er vegna mikils ferðamannastraums um svæðið.
Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.