Önnur konan sem leitað hefur verið að síðan í nótt, fannst nú á fimmta tímanum við Emstruleið, ofan við Einhyrning. Konan var á gangi, köld og hrakin, þegar hún fannst. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli er líðan konunnar eftir atvikum.
Konan er komin um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem heldur áfram leit að ferðafélögum hennar, konu og manni. Að sögn lögreglunnar er búið að kalla út allar björgunarsveitir og beina þeim á svæðið þar sem konan fannst. Er talið að ferðafélagar konunnar séu líka á gangi. Bifreiðin hefur enn ekki fundist, en um er að ræða bláa Honda CRV með númerið R-532.