Starfshópur gefur nýja fjallinu nafn

Eldfjallið nýja á Fimmvörðuhálsi.
Eldfjallið nýja á Fimmvörðuhálsi. mbl.is/Árni Sæberg

Menntamálaráðherra hefur staðfest að starfhópur á vegum þeirra þriggja
opinberu aðila sem hafa með örnefni að gera samkvæmt lögum: Landmælinga Íslands, nafnfræðisviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og örnefnanefndar, fari í sameiningu með ákvörðunarvald á nafngift nýrrar eldstöðvar neðan Fimmvörðuháls. 

Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu segir, að með þessari staðfestingu hafi  verið eytt óvissu um hver skuli ákveða nafn á hinu nýja kennileiti, en mikill áhugi sé á nafngiftinni og starfshópnum hafi borist fjölmargar tillögur.

Næstu skref hópsins eru því að fara yfir tillögurnar auk þess að kynna sér þau örnefni sem þekkt eru á svæðinu, en nokkuð vandaverk kunni að vera að velja nafn á eldstöð sem enn er í fullri virkni og óljóst sé hvernig muni þróast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert