Kostnaður björgunarsveita vegna gæslu við eldgosið á Fimmvörðuhálsi um helgina nemur hundruðum þúsunda króna að sögn Kristins Ólafssonar, framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra er nú að fara yfir þann kostnað sem lagt hefur verið út fyrir síðan gosið hófst en til stendur að ríkið komi til móts við björgunarsveitirnar vegna útgjaldanna.
Þótt björgunarsveitarmenn vinni í sjálfboðastarfi fylgir störfum þeirra mikill kostnaður, m.a. vegna eldsneytisnotkunar og tækjabúnaðar.Eldgosið hefur nú staðið í rúmar tvær vikur en það gæti allt eins staðið mánuðum saman og ljóst er að björgunarsveitir geta ekki staðið vaktina endalaust með sama hætti.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli segir að það sé aðeins mikill minnihluti ferðafólks sem hafi sýnt dómgreindarskort og björgunarsveitir því þurft að stöðva það. Langflestir ferðalangar sýni skynsemi og séu vel búnir m.v. aðstæður. Stöðug gæsla ætti því ekki að vera nauðsyn til langframa.
Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.