Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu á sextugsaldri í 3 mánaða fangelsi fyrir að stela dós af jólaöli og skinnarmbandi í galleríi á Stokkseyri. Konan hefur ítrekað verið dæmd fyrir þjófnað og fleiri brot og rauf með þessi skilyrði eldri dóms.
Þetta gerðist í desember á síðasta ári. Konan sagðist hafa greitt fyrir gosið áður en hún
fór með dósina út úr húsinu en armbandið hafa slæðst í poka með
pilsi sem hún keypti. Þetta tók dómurinn ekki trúanlegt og fann konuna seka.