Vísindamenn NASA komust að því innan við sólarhring eftir að fyrstu
niðurstöður bárust úr gervihnöttum að orkan úr eldgosinu á
Fimmvörðuhálsi væri meiri en
milljarður vatta, sem dygði til að knýja 40 þúsund fólksbíla samtímis,
og að úr sprungunni streymdu meira en sex tonn af hrauni á sekúndu.
Starfshópur á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hefur nýtt nýjustu tækni í gervigreind gervihnatta til að leggja mat á hitann og hraunrennslið frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Frá þessu er greint á vefsíðu á vegum NASA.
Greint er frá því að tækjabúnaður NASA um borð í gervihnöttum og á jörðu niðri hafi gert viðvart um eldgosið þegar það hófst 20. mars síðastliðinn. Að jafnaði berast slíkar viðvaranir innan við 90 mínútum eftir atburðir verða. Um leið eru gervihnettir stilltir til að skoða atburðinn.
Gervihnöttur fór yfir gosstaðinn 24., 29. og 30. mars og sendi gögn til Jet Propulsion Laboratory NASA í Pasadena í Kaliforníu þar sem tölvur unnu úr gögnunum, teiknuðu kort og áætluðu varmaorku og hraunflæði úr gosinu.