Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur gefið út reglugerð um störf eftirlitsnefndar, sem á að fylgjast með endurskipulagningu félaga á vegum fjármálafyrirtækja.
Í reglugerðinni er m.a. að finna ákvæði um eftirlit með endurskipulagningu fyrirtækja á
vegum fjármálafyrirtækja. Samkvæmt því ákvæði skulu fjármálafyrirtæki gera
eftirlitsnefndinni grein fyrir fjárhagslegri endurskipulagningu allra fyrirtækja
þar sem eftirgjöf skulda nemur hærri fjárhæð en 1 milljarði króna. Með eftirgjöf
skulda er átt við beina lækkun höfuðstóls skulda eða lækkun höfuðstóls innan
tiltekins tímafrests, breytingu skuldar í víkjandi lán eða breytingu víkjandi
láns í hlutafé eða annað eigið fé, segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Þá er í reglugerðinni gert ráð fyrir að eftirlitsnefndin birti ársfjórðungslega greinargerð með tölfræðilegum upplýsingum um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja á vegum fjármálafyrirtækja, þar sem m.a. skal koma fram fjöldi fyrirtækja sem sætt hafa fjárhagslegri endurskipulagningu, hvers konar fyrirtæki eigi í hlut og á hvaða sviðum atvinnulífsins. Þá skal veita upplýsingar um heildarfjárhæð eftirgjafar skuldar í hverjum flokki.