Sex stútar teknir undir stýri

mbl.is/Júlíus

Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt, og einn ökumaður var tekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna á Akureyri. Hafði hann í fórum sínum lítilræði af efnum, hvítu dufti sem á eftir að greina nákvæmlega hvað er.

Lögreglan á Akureyri tekur fram að maðurinn hafi ekki tengst söngkeppni framhaldsskólanna, sem fram fór á Akureyri í gær, á neinn hátt. Aðspurður hvernig keppnin hafi farið fram segir hann að ekki hafi borið skugga á keppnina og lögregla engin afskipti þurft að hafa af gestum þar.

Eitthvað var um hávaðaútköll í stærri bæjarfélögum, en engin alvarleg atvik komu upp á í nótt. Nóttin var víðast hvar mjög róleg hjá lögregluembættum um landið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert