Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkna þrjú í dag eftir að tilkynning barst um karlmann með mikinn brjóstverk á Grímmannsfell upp af Helgadal í Mosfellssveit.
Þyrlan lenti síðan við Borgarspítalann skömmu fyrir fjögur. Björgunarsveitarmenn höfðu áður verið sendir af stað fótgangandi til móts við hópinn, en þeim var snúið við er þyrlan kom á staðinn.
Maðurinn, sem er
um sextugt, var í hópi göngufólks á fjallinu og veiktist skyndilega.