Faxi RE og Lundey NS eru á leið í land með um 3.000 tonn af kolmunna, sem skipin hafa veitt á alþjóðlega hafsvæðinu sunnan Færeyja undanfarna daga. Aflabrögðin voru róleg fyrstu dagana eftir páska en hafa farið vaxandi enda virðist kolmunninn í auknum mæli vera farinn að ganga norður í áttina inn í færeysku lögsöguna. Ingunn AK er hins vegar enn á miðunum og var skipið komið með um 1.400 tonna afla í morgun.
„Við reiknum með að verða komnir til Vopnafjarðar undir morgun,“ er haft eftir
Albert Sveinsson, skipstjóri á Faxa RE á vefsíðu HB Granda. „Við fengum mjög gott hol í gær eða um 700 tonn eftir daginn og þar með
var aflinn kominn í fullfermi eða um 1.550 tonn. Það er greinilegt að kolmunninn
er byrjaður að síast norður á bóginn. Veiðin hefur verið mjög góð í skosku
lögsögunni en þar datt aflinn niður hjá færeyskum skipum í gær og þau færðu sig
þá norður til okkar.
Það fer á verða þröng á þingi á miðunum eins og venjulega á
þessum árstíma. Þegar við komum á svæðið þá var þar eitt rússneskt skip að
veiðum. Rússarnir eru núna einhvers staðar á milli 20 og 30 talsins og þarna
voru átta íslensk skip í gær. Síðan er mikið af skipum að koma úr skosku
lögsögunni þannig að þetta er að verða mjög stór hópur,“ sagði Albert
Sveinsson.