Heiðlóan er komin til Vestfjarða. Í gær sáust nokkrar í Önundarfirði og í Dýrafirði sá Sighvatur frá Höfða í Dýrafirði þær fyrstu í gærmorgun.
Tildrur og stelkar sáust einnig í Önundarfirði í gær og ein sandlóa. Í dag voru fyrstu stelkarnir síðan mættir til Bolungarvíkur ásamt þremur tildrum og þá sáust þrír gráhegrar á sjókví í Súðavík 10. apríl sl.