Fimm farþegar veikir

Farþegaflugvél American Airlines, sem er af gerðinni Boeing 767,  er væntanleg til lendingar á hverri stundu. Vélin er að koma frá París og var að fljúga til Bandaríkjanna þegar óskað var eftir að fá að lenda í Keflavík í öryggisskyni. Fjölmennt slökkvi- og sjúkralið auk björgunarsveita er á vettvangi.

145 eru um borð í vélinni og tilkynnt hefur verið að um fimm eða sex farþegar um borð séu veikir. Einhverskonar efni hafi lekið í farþegarými vélarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert