Samtök atvinnulífsins (SA) lýsa stuðningi við hugmyndir samgönguráðherra um flýtingu stórra samgönguframkvæmda og og hvetja til víðtækrar pólitískrar samstöðu um þessi verkefni.
Eins og fram hefur komið er um að ræða þær þrjár leiðir sem liggja til og frá höfuðborginni, þ.e. tvöföldun Vesturlandsvegar, tvöföldun Suðurlandsvegar auk nýrrar brúar yfir Ölfusá, að lokið verði við tvöföldun Reykjanesbrautar og Vaðlaheiðargöng.
Kostnaður er áætlaður samtals 33 milljarðar króna og geta framkvæmdir hafist þegar á þessu ári og lokið árið 2014. Þegar ráðherra kynnti framkvæmdirnar nýverið kom fram að stofnað verði sérstakt félag í eigu ríkissjóðs um þessar framkvæmdir sem taki lán hjá lífeyrissjóðum á svipuðum vöxtum og skuldabréf Íbúðalánasjóðs bera og hófleg veggjöld standi straum af endurgreiðslu lána og vaxta.
„Ríkissjóður verður að skera niður útgjöld á næstu árum og draga mun úr framlögum ríkisins til samgönguframkvæmda sem annarra verkefna. Ólíklegt er að þessar framkvæmdir verði að veruleika fyrr en eftir 10-15 ár ef fjármögnun verður með hefðbundnum hætti, þ.e. með framlögum úr ríkissjóði. Framkvæmdirnar eru hins vegar þjóðhagslega hagkvæmar vegna mikils umferðarmagns og hárrar tjóna- og slysatíðni á þessum leiðum. Tvöföldun stofnbrauta umhverfis höfuðborgarsvæðið með vegriðum og öruggum gatnamótum mun bæta umferðaröryggi og fækka slysum og munatjónum mjög mikið,“ segir m.a. í frétt á vef samtanna.