Umræða um skýrslu rannsóknarnefndarinnar er hafin á Alþingi. Yfir tuttugu þingmenn eru á mælendaskrá og verður rætt fram eftir degi, og svo aftur á morgun.
Meðal þeirra þingmanna sem eru á mælendaskrá eru Ögmundur Jónasson, Atli Gíslason, Einar K. Guðfinsson, Ragna Árnadóttir, Gylfi Magnússon og Þórunn Sveinbjarnardóttir.