Ármann Kr. Ólafsson, fyrrverandi alþingismaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, segir að engin lán sem hann hafi tekið hafi verið afskrifuð. Í rannsóknarskýrslu Alþingis kemur fram að Ármann skuldaði á vormánuðum 2007 248 milljónir króna. Hann segir að fjárhagsstaða sín sé traust.
„Ég var kosinn á Alþingi á vormánuðum 2007 en áður en til þess kom hafði ég átt í ákveðnum fjárfestingum og tekið lán vegna þeirra. Í ágústlok náðu lán mín hámarki í nokkra daga, eða 248 m.kr., eins og fram kemur í skýrslunni. Í skýrslunni eru tekin með fasteignalán en megnið af upphæðinni er vegna áðurgreindra fjárfestinga. Eignir og eigið fé sem nam talsvert hærri upphæð var lagt fram til tryggingar á móti þessum lánum eins og almennar reglur bankans kváðu á um. Strax í byrjun september 2007 hóf ég að draga mig út úr þessum fjárfestingum og þegar fjármálakerfið féll stóð eftir krafa upp á 33 m.kr. vegna þessara fjárfestingalána. Hjá bankanum liggur ríflega sú fjárhæð frá mér í peningum til tryggingar kröfunni.
Þau lán sem nefnd eru í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis voru tekin á mína kennitölu og bar ég því fulla og persónulega ábyrgð á þeim. Engin lán til mín hafa verið afskrifuð, verða afskrifuð, né hafa lán til mín nokkurn tíma lent í vanskilum. Fjárhagsstaða mín er traust.
Þegar ég hef boðið mig fram til opinberra starfa í prófkjörum hef ég lagt mikið upp úr tengingu minni við atvinnulífið. Ég tel mikilvægt fyrir þátttakendur í stjórnmálum að hafa innsýn í atvinnulífið og vona að þeir atburðir sem átt hafa sér stað í íslensku stjórnmála- og viðskiptalífi, og skýrslan tekur að mínu mati vel á, verði ekki til þess að menn verði fordæmdir fyrir þátttöku í öðru hvoru eða hvoru tveggja. Það hlýtur ávallt að vera grundvallaratriði hvernig menn sinna sínu og hvort þeir séu reiðubúnir að taka fjárhagslega ábyrgð á því sem þeir sýsla persónulega,“ segir Ármann í yfirlýsingu sinni.