Forsetinn í afmæli drottningar

Margrét Þórhildur Danadrottning er að verða sjötug.
Margrét Þórhildur Danadrottning er að verða sjötug. Reuters

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú hafa þegið boð Margrétar Danadrottningar um að taka á morgun, fimmtudaginn 15. apríl og föstudaginn 16. apríl, þátt í hátíðarhöldum í Kaupmannahöfn í tilefni af 70 ára afmæli drottningar.

Hátíðarhöldin hefjast annað kvöld með viðhafnarsýningu í Konunglega leikhúsinu. Næsta dag verður móttaka í Ráðhúsi Kaupmannahafnar og hátíðarkvöldverður í Konungshöllinni. Þjóðhöfðingjum Norðurlanda er sérstaklega boðið til hátíðarhaldanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert