Seinna hlaupið í Markarfljóti er nú í rénun eftir að hafa náð hámarki á níunda tímanum í kvöld. Öskufall er hins vegar farið að aukast fyrir austan í Meðallandi, Skaftártungum og neðri hluta Landbrots. Rekja má kolsvartan strók sem lagði frá gosstöðvunum fyrr í kvöld til gjóskunnar.
Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hefur verið haft samband við bændur í Meðallandi og Skaftártungum og eru þeir nú að taka búfénað inn. Þá hafa Almannavarnir sent út tilkynningu þar sem búfjáreigendum á áhrifasvæði eldgossins er bent á að fylgjast grannt með mögulegu öskufalli, t.d. með því að leggja út hvítan disk.
Á vef Almannavarna kemur þá fram að gangur eldgossins í Eyjafjallajökli sé stöðugur. Í dag og í kvöld hafi gengið á
með sprengivirkni sem fylgi öskufall. „Vart hefur orðið við öskufall allt
umhverfis Eyjafjallajökul og í sveitunum fyrir austan hann. Öskufallið virðist
vera nokkuð breytilegt frá einu svæði til annars og það vex einnig og dvínar á
víxl. Sumsstaðar hefur öskufall verið það mikið um tíma að það hefur haft mikil
áhrif á skyggni. Sumsstaðar hefur það verið svo mikið að skyggni hefur farið
niður í um 50 metra. Ökumenn eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát vegna þessa“ segir á vefnum.
Rýmingu var aflétt að hluta fyrr í kvöld þó að þau svæði
sem eru næst flóðafarvegunum þ.e. við Austur-Landeyjar og undir
Eyjafjallajökli, verði áfram rýmd í nótt. Áfram verða vegir lokaðir og
takmarkanir á umferð.
Vel verður fylgst með áfram í nótt og verður bæði vettvangs- og aðgerðastjórn á Hvolsvelli.