Vart hefur orðið við töluvert af lituðu vatni í Skógá, við Skógafoss undir Eyjafjöllum. Skógá hefur hingað til ekki hlaupið eða orðið fyrir öðrum áhrifum vegna eldgossins en hugsanlegt er þó að svo verði.
Mesta hlaup sem komið gæti í Skógá gæti tekið niður brúna sem liggur yfir ána. Lögregla hefur bíl á svæðinu og fylgist þar með þróun mála.