ESB grundvallarþáttur í endurreisninni

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mbl.is/Ómar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að umsókn Íslands að Evrópusambandinu sé grundvallarþáttur að endurreisn Íslands. Íslendingar verði að losa sig við kollsteypuhagkerfið. Þetta sagði hann er hann opnaði í morgun ráðstefnu um stuðning ESB við atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun í aðildarríkjum þess.

Hann segir að Íslendingar þurfi á traustari umgjörð utan um atvinnu- og efnahagslífið, langtímastöðugleika fyrir fjölskyldur og fyrirtæki, og að rjúfa vítahring verðbólgu, vaxta og verðtryggingar sem hér sé allt að sliga. 

Tilkynning utanríkisráðuneytisins

Össur segir að ESB ekki vera töfralausn en lýsti þeirri skoðun sinni að aðild gæti orðið Íslendingum að verulegu liði við að byggja upp nýtt Ísland. Hann sagði hrakspár og hræðsluáróður í tengslum við Evrópusamstarfið og Ísland aldrei hafa reynst á rökum reistar, ekki við inngöngu Íslands í EFTA árið 1970 og ekki við aðildina að EES árið 1994.

Hann sagðist þess fullviss að tryggja megi grundvallarhagsmuni Íslands í fyrirhuguðum aðildarviðræðum enda væru fjölmörg fordæmi fyrir því að ESB hefði komið til móts við sérstöðu nýrra aðildarríkja. Staða Íslands væri sterk í því tilliti, hvort sem litið væri til sjávarútvegs, landbúnaðar eða annarra atvinnugreina. Nú væri enn meiri ástæða en nokkru sinni fyrr að fá úr því skorið hvað falist getur í aðild.

Á annað hundrað manns taka þátt í ráðstefnunni sem fram fer í Salnum í Kópavogi í dag og á morgun, auk fjölda erlendra fyrirlesara frá stofnunum ESB. Fyrirlesarar frá Möltu, Finnlandi, Danmörku og Eistlandi fjalla um reynsluna af þeim stuðningi sem þessi ríki hafa notið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert