Kór frá Sólheimum í Grímsnesi heimsótti Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, og söng fyrir hana afmælissöng, en Vigdís fagnar áttatíu ára afmæli í dag.
Vigdís tók söngnum fagnandi og þakkaði fyrir sig með því að faðma hvern og einn félaga í kórnum. Þeir kunnu vel að meta þessar góðu þakkir.
Vigdís var sæmd heiðursnafnbót við deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda við hugvísindasvið Háskóla Íslands í dag. Kl. 15:30 hefst hátíðardagskrá í Háskólabíói. Dagskráin er öllum opin.