Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, sagði að líklega yrði rannsókn á meintum skattsvikum útrásarvíkinganna tekin fyrir á undan almennri rannsókn á brotum í tengslum við efnahagshrunið. Þetta sagði hann aðspurður um hvort ríkisstjórnin hygðist koma í veg fyrir að þeir eignuðust fyrirtæki sín að nýju.