Vindurinn er að snúast í norðanátt og nú sést vel til gossins í Eyjafjallajökli. Jónas Erlendsson fréttaritari í Morgunblaðsins á Suðurlandi tók nýjar myndir af gosinu í kvöld sem sýna það í nýju ljósi.
Farið er að bera á öskufalli í Vík í Mýrdal og búast má við miklu öskufalli á bæjum undir Eyjafjöllum í nótt.