Gamla brúin yfir Markarfljót opin

Markarfljót
Markarfljót mbl.is/Golli

Gamla brúin yfir Markarfljót er nú opin fyrir umferð með takmörkunum, mest vörubílum með 12 tonna heildarþunga. Aðgerðarstjórn á Hvolsvelli hefur umsjón með umferð yfir brúna, fyrst og fremst brýnum flutningum á matvælum, búfénaði og þannig háttar.

Vinna við nýju brúna liggur niðri þar sem of mikið vatnsmagn er í ánni, samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarstöð almannavarna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert