Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga, þ.e. London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, Amsterdam, Frankfurt og Parísar á morgun, 18. apríl, verði fellt niður, líkt og raunin var um flugið til Evrópu í dag, laugardag. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu.
Flug til og frá Bandaríkjunum verður samkvæmt áætlun.
Sérstök athygli er vakin á því að breytingar geta orðið með stuttum fyrirvara verði heimildir veittar til flugs eða af öðrum orsökum, og eru farþegar hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum, komu- og brottfarartímum á textavarpi og vefmiðlum og upplýsingum á icelandair.is áður en farið er til Keflavíkurflugvallar.