Að sögn almannavarna hefur gosvirkni verið minni í dag en áður. Gosmökkurinn fer lægra, minni öskumyndun og litlar fréttir af öskufalli. Mökkur er bæði yfir Mýrdals- og Eyjafjallajökli en aska nær ekki niður í byggð.
Öll nauðsynleg starfsemi hefur gengið eðlilega í dag. Engar truflanir hafa verið á dreifingu raforku og neysluvatn reynist í lagi. Fjarskipti hafa gengið eðlilega. Engar fréttir hafa borist af skorti á nauðsynjum.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra kynnti sér aðstæður undir Eyjafjallajökli í dag og fundaði hún með almannavörnum á Hellu þar sem farið var yfir stöðu mála.
Upplýsingar frá Veðurstofu: Vestlæg átt í kvöld og líkur á öskufalli í Mýrdal, á Mýrdalssandi, í Skaftártungum og Meðallandi. Norðanátt í nótt og á morgun, hætt við öskufalli frá A-Eyjafjöllum og jafnvel vestur fyrir Vestmannaeyjar um tíma.