Toyota í Evrópu hefur tilkynnt um innköllun á Land Cruiser 150 bifreiðum vegna uppfærslu á stöðuleikastýringu. Innkalla þarf 26 bifreiðar sem eru komnar í notkun hér á land og að sögn Toyota á Íslandi verður haft samband við eigendur þeirra.
Um 20 Land Cruiser bifreiðar
eru væntanlegar til landsins á næstunni og falla þær einnig undir þessa
innköllun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Toyota.
„Í undantekningartilvikum, þegar tekin er beygja á miklum hraða, er mögulegt að bíllinn renni til án þess þó að ökumaður missi stjórn á honum. Til að koma í veg fyrir þetta verður hugbúnaður stöðuleikastýringarinnar uppfærður,“ segir í tilkynningu.
„Ekki er vitað til þess að slys hafa orðið af þessum völdum í Evrópu og undir öllum venjulegum kringumstæðum og í eðlilegum akstri er bíllinn öruggur. Innköllunin á einnig við um Lexus GX 460 jeppa sem ekki eru á markaði hér á landi. Innköllunin nær ekki til annarra gerða af Toyota og Lexus,“ segir ennfremur.