Sveinn K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli hefur staðið í ströngu síðustu vikur. Í dag var útlit fyrir að gosið sé í rénun en Sveinn segir þó að áfram verði fylgst grannt með gangi mála.
„Við höfum verið með mikinn viðbúnað og mikinn mannskap um allt svæðið í rúman mánuð," sagði Sveinn.