Fellst á hótelstarfsemi í Heilsuverndarstöð

Hús Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg.
Hús Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg.

Skipulagsráð Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í gær, að hótelstarfsemi í Heilsuverndastöðinni við Barónsstíg sé ekki í andstöðu við gildandi deiliskipulag. Ráðið áréttaði þó, að þar sem húsið sé friðað þurfi samþykki Húsafriðunarnefndar fyrir öllum breytingum.

Fyrir fundi skipulagsráðs lá ósk um að innrétta húsnæðið sem hótel fyrir Icelandair Hótel. Í samþykkt ráðsins segir, að húsið við Barónsstíg 47 sé fyrsta sérhannaða húsið fyrir heilsuvernd á Íslandi og gegni sem slíkt veigamiklu menningarsögulegu hlutverki. Ráðið telji því æskilegast að það gegni áfram því hlutverki sem því var ætlað upprunalega.

„Skipulagsráð telur þó að hótelstarfsemi sé ekki í andstöðu við gildandi deiliskipulag. Ráðið leggur ríka áherslu á að fyrirspyrjendur vandi afar vel til vinnslu byggingarleyfisumsóknar og er lögð áhersla á að haft verði gott samráð við Minjasafn Reykjavíkur. Um er að ræða friðað hús og eina af perlum byggingarlistar í Reykjavík. Bent er sérstaklega á niðurlag umsagnar borgarminjavarðar vegna málsins en þar stendur m.a.; ...því er áréttað að þar sem húsið er friðað þarf samþykki Húsafriðunarnefndar fyrir öllum breytingum. Ráðið leggur einnig áherslu á að varlega verði farið í allar breytingar sem þarf að ráðast í vegna breyttrar starfsemi," segir í bókun ráðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert