Sumardagurinn fyrsti er haldinn hátíðlegur um allt land. Hefð er fyrir því að skátar taki virkan þátt í hátíðarhöldum dagsins og þeir eru áberandi í skrúðgöngum, sem farnar eru.
Í Reykjavík verða haldnar sérstakar hverfahátíðir í borginni og einnig stendur barnamenningarhátíð yfir. Þá hófst skátamessa í Hallgrímskirkju klukkan 11.