Þrír á slysadeild eftir spyrnu

Lögreglan.
Lögreglan.

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að spyrnukeppni ökumanna tveggja bifreiða endaði með því að annarri bifreiðinni var ekið á miklu hraða á vegrið undir brúnni á gatnamótum Miklubrautar, Hringbrautar og Bústaðavegar á ellefta tímanum í kvöld.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu missti ökumaður annarrar bifreiðarinnar stjórn á henni með fyrrgreindum afleiðingum.

Ekki var vitað um líðan fólksins á þessari stundu né heldur fengust upplýsingar um kyn þeirra sem fluttir voru til aðhlynningar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert