Í dag er von á fjórum dælubílum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Brunavörnum Árnessýslu og Brunavörnum Rangárvallasýslu austur undir Eyjafjöll.
Kjartan Þorkelsson sýslumaður sagði að dælubílarnir yrðu notaðir við hreinsun ösku af húsum og þökum á öskufallssvæðinu.