Flugmálastjórn Íslands hefur gefið samþykki fyrir að Flugstoðir víki frá viðbúnaðaráætlun sem gildir á Norður- Atlanthafssvæði Alþjóða flugmálastofnunarinnar, og varðar flug í innanlandssvæði Íslands á meðan á eldgosi stendur.
Hjördís Guðmundsdóttir sagði þessa breytingu þýða að nú megi gefa flugvél blindflugsheimild inn á svæði sem eru rauðlituð á öskudreifingarkortum sem merkir að þar sé lítil gjóskumettun. Þetta geti verið mikilvægt ef t.d. vindátt breytist. Þá geti Keflavíkurflugvöllur lent innan rauðlitaða svæðisins, í stað þess að vera undir svarta litnum eins og var kl. 18.00 í kvöld.
Flugvélar fengu fyrr í dag að fljúga í sjónflugi um rauðlitaða svæðið, t.d. til og frá Akureyri, en nú geta þær fengið blindflugsheimildir. Þetta þýðir að hægt er að fljúga að nóttu til um Akureyri þótt svæðið sé rauðlitað á öskukorti.
Fram kemur í tilkynningu frá Flugstoðum, að notuð sé sama aðferðarfræði og notuð er í Evrópusvæðinu. Frá og með rúmlega kl. 18 í dag verði blindflugsheimildir gefnar í gegnum það svæði sem er með lágri öskumettun, þær heimildir eru á ábyrgð flugrekenda sem þurfa á sama tíma að uppfylla stífari skilyrði varðandi viðhald og eftirlit á flugvélum.
Frávikið felst í því að spásvæði gjóskudreifingar
er skipt upp í tvo hluta, svæði 1 (svart) og svæði 2 (rautt), miðað
við þéttleikaspá, sem gefið er út af upplýsingamiðstöð um
gjóskudreifingu, er staðsett er í London.
Svæði 1 auk 15
sjómílna öryggissvæðis umhverfis það, er skilgreint sem „fluglaust
svæði” þar sem engin blindflugsheimild er gefin.
Í svæði 2 eru gefnar blindflugsheimildir með sömu aðferðarfræði og beitt er innan
evrópusvæðis Alþjóða flugmálastofnunarinnar.