Aska hefur fallið á Selfossi í gærkvöldi og morgun. Að sögn íbúa, sem setti matardisk sem smurður var með smjöri, út á tröppur í gærkvöldi, var greinilega öskuusalli í honum í morgun.
Annar íbúi sergir, að úti á palli hjá sér standi kippa af Coke sem var sett út fyrr í gær. Sé strokið yfir tappana verði fingurnir svartir af fíngerðu dufti. Sama sé að segja um bíla og annað í nágrenninu.