Fjórir í haldi fyrir að keyra á staur

mbl.is/Július

Fjórir ungir karlar eru í haldi lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Þeir voru handteknir eftir að bíl, sem þeir voru í, var ekið á ljósastaur í Hafnarfirði. Enginn þeirra kannaðist við að hafa ekið bílnum. Þeir voru ekki allsgáðir og auk þess fannst eitthvað af fíkniefnum í bílnum.

Mennirnir eru allir rúmlega tvítugir. Alls gistu átta fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun, þar af sat helmingurinn inni vegna þessa eina máls.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert