Iceland Express stefnir að flugi til og frá Keflavíkurflugvelli á morgun. Fyrirhugað er að fljúga til London, Kaupmannahafnar, Berlínar og Brussel á morgun.
Tvær vélar Iceland Express fóru nú síðdegis frá Akureyri til annars vegar London og hins vegar til Kaupmannahafnar. Þær vélar koma til baka í kvöld. Hugsanlegt er, að þær lendi í Keflavík. Ef ekki reynist unnt að lenda þar, lenda þær á Akueyrarflugvelli.
Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.