Kolmunnaveiðar skipa HB Granda hafa að undanförnu gengið vel. Í frétt á vef félagsins segir að hratt hafi gengið á kolmunnakvóta þess og nú séu aðeins óveidd um 3.000 tonn af kvóta ársins. Það samsvarar einni veiðiferð til viðbótar hjá tveimur af uppsjávarveiðiskipum félagsins.
„Faxi RE og Lundey NS eru á leiðinni til Vopnafjarðar með
fullfermi af kældum afla eða alls um 2.700 tonn. Faxi er væntanlegur í
kvöld en Lundey í fyrramálið,“ er haft eftir Vilhjálmi Vilhjálmssyni,
deildarstjóra uppsjávarveiðisviðs HB Granda, í frétt á vef félagsins.