Samstarfssamningur prestanna á Selfossi er til yfirferðar hjá vígslubiskupnum á Hólum.
Fram kemur á fréttavef Sunnlenska, að ágreiningur sé um eitt atriði í samningi Kristins Ágústs Friðfinnssonar og Óskars H. Óskarssonar um verkaskiptingu sóknarprests og prests.
Muni vígslubiskup að líkindum þurfa að skera úr því deiluefni.