Lögreglan á Akranesi fékk snemma á sunnudagsmorgun tilkynningu um mann sofandi utandyra niðri við höfn. Maðurinn var kominn á fætur þegar að var komið en orðið ansi kalt.
Lögreglan segir, að maðurinn, sem kom frá höfuðborginni, hafi verið talsvert ölvaður en nokkuð viss um að hann væri á Akranesi. Mundi það eitt að einhver félaginn hafði stungið upp á því að þeir skelltu sér á Akranes til að drekka. Taldi hann að hann ætti vísa gistingu á Akranesi en hafði bara ekki hugmynd um hvar.
Lögreglan skaut skjólshúsi yfir manninn fram eftir morgni.