Sex milljónum króna verður varið til kaupa og uppsetningar á sjálfvirkum mæli til að mæla svifryk á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Tillaga Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra þess efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
Umhverfisstofnun segist hafa að undanförnu lagt áherslu á að mæla eftir fremsta megni styrk svifryks á svæðum sem orðið hafa fyrir öskufalli í nágrenni Eyjafjallajökuls. Einnig hafi stofnunin mælt tilteknar gastegundir á áhrifasvæðinu. Búnaður til slíkra mælinga sé af skornum skammti hér á landi en stofnunin hafi flutt á svæðið mæli sem stofnunin hafi haft á Akureyri og annan mæli sem hún fékk að láni tímabundið hjá Reykjavíkurborg.
Umrætt svæði sé hins vegar svo stórt að fleiri mæla þurfi til að sinna þessari vöktun svo vel sé. Sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjórinn hafi tekið undir með Umhverfisstofnun um mikilvægi þess að vöktun á svifryki verði aukin.