Samkeppniseftirlitið segir, að stefna Símans vegna húsleitar hjá fyrirtækinu, eigi ekki við rök að styðjast. Einstaklingar, sem starfa hjá Þekkingu og fengnir voru til að aðstoða við húsleitirnar, hafi verið starfsmenn Samkeppniseftirlitsins á vettvangi og starfað samkvæmt fyrirmælum og á ábyrgð þess.
Síminn tilkynnti í dag, að fyrirtækið hefði stefnt Samkeppniseftirlitinu fyrir héraðsdóm og krefðist þess að öllum gögnum sem aflað var í húsleit hjá Símanum verði eytt, þar sem starfsmenn keppinautar Símans hafi annast afritatöku. Segist Samkeppniseftirlitið vilja taka fram eftirfarandi:
Eins og fram er komið opinberlega framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Símanum og öðrum fyrirtækjum í sömu samstæðu, þann 21. apríl sl. Húsleitin var viðamikil enda þurfti eftirlitið að afrita og leita gagna á nokkrum stöðum í húsnæði fyrirtækjanna. Samkeppniseftirlitið þurfti því að fá til liðs við sig nokkra einstaklinga með upplýsingatækniþekkingu til að aðstoða við aðgerðina og leitaði til Þekkingar í því skyni. Umræddir einstaklingar voru starfsmenn Samkeppnis-eftirlitsins á vettvangi og störfuðu samkvæmt fyrirmælum og á ábyrgð þess.
Öll aðgerðin fór fram undir stjórn Samkeppniseftirlitsins og þau gögn sem haldlögð voru og afrituð eru vistuð með öruggum hætti hjá Samkeppniseftirlitinu. Umræddir einstaklingar komu hvergi nærri haldlagningu gagna eða efnislegri skoðun tölvugagna heldur fólst hlutverk þeirra einvörðungu í tæknilegri aðstoð við afritun gagna. Málatilbúnaður Símans á því ekki við rök að styðjast.
Með hliðsjón af framangreindu kemur kæra Símans og krafa um eyðingu húsleitargagna á óvart, ekki síst í ljósi þess að Síminn lýsti því opinberlega yfir að fyrirtækið myndi vinna með Samkeppniseftirlitinu við öflun gagna og rannsókn á þeim.