Verið er að taka kostnað saman vegna eldgossins á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Að sögn fjármálaráðherra liggur gróft mat fyrir í lok vikunnar. Meginþunginn er talinn falla á Bjargráðasjóð og Viðlagatryggingu. Þetta kom fram á Alþingi í dag.
Við utandagskrárumræðu um afleiðingar eldgossin í Eyjafjöllajökli sagði Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks og málshefjandi, að um 80 býli og heimili væru á því svæði sem helst þarf að huga að undir Eyjafjöllum. Mun víðar þurfi þó að grípa til hendinni, hvort sem er austan eða vestan Markarfljóts. Meðal annars þurfi að styrkja varnargarða og gera það fljótt.
Árni sagði að ef skipulagning gengur vel sé hægt að ljúka öllum verkum á svæðinu á nokkrum vikum. Þá þurfi stjórnvöld að styðja vel við, „og ekkert hangs eða hik," sagði Árni og sagði að hægt væri að ljúka þessu á nokkrum vikum.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fór stuttlega yfir kostnaðaráhrif. Hann sagði ljóst að Viðlagatrygging geti bætt allt það sem hann þarf enda 37 milljarðar króna í sjóðnum. Viðlagatrygging mun einnig að einhverju leyti taka þátt í forvarnaraðgerðum, s.s. við styrkingu varnargarða. Skemmdir á jörðum fellur hins vegar á Bjargráðasjóð en í honum eru 375 milljónir króna. Þegar hafi verið tekin ákvörðun um að gera honum kleift að bæta það sem honum ber.
Hvað annan kostnað ræði fellur mesti þungi á Almannavarnir. Björgunarsveitir hafi unnið ómetanlegt starf og tekið á sig kostnað sem bæta þurfi.