Eftirlitsnefnd fari yfir feril málsins

Sigurgeir Runólfsson og Þórey Guðmundsdóttir á Skáldabúðum.
Sigurgeir Runólfsson og Þórey Guðmundsdóttir á Skáldabúðum. mbl.is/RAX

Íslandsbanki hefur farið þess á leit við eftirlitsnefnd sem skipuð er af ráðherra efnahags- og viðskiptamála að hún fari yfir öll gögn og feril máls bóndans á Skáldabúðum í Árnessýslu, sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag.

Í athugasemd frá Íslandsbanka segir, að starfsmenn bankans hafi unnið að úrlausn mála mjólkurbúsins að Skáldabúðum frá því árið 2008 í nánu samráði við eigendur.  Í þeirri viðleitni hafi verið ákveðið að eiganda yrði áfram gefinn kostur á að selja eignina í frjálsri sölu og taldi bankinn að með því fengi eigandinn besta verð fyrir jörðina. Samhliða myndi bankinn vinna með eiganda að úrlausn skulda hans og leitast við að afstýra gjaldþroti.

„Því er ranglega haldið fram í greininni að Íslandsbanki hafi selt umrædda eign án auglýsingar þar sem bankinn hafði ekki leyst til sín umrædda eign. Þá skal þess getið að eignin hefur verið auglýst til sölu opinberlega, m.a. á hjá Lögmönnum Suðurlands, síðan 19. mars 2008 án þess að eignin seldist.

Lánamál eru viðkvæm og flókin í meðförum og þess eðlis að bankinn er bundinn trúnaði varðandi einstaka þætti þeirra og á því erfitt með að taka þátt í opinberri umfjöllun einstök mál. Í því ljósi hefur Íslandsbanki farið þess á leit við eftirlitsnefnd sem skipuð er af ráðherra efnahags- og viðskiptamála að hún fari yfir öll gögn og feril málsins.

Þá skal þess getið að blaðamaður Morgunblaðsins kallaði ekki eftir sjónarmiðum Íslandsbanka við vinnslu fréttarinnar," segir í athugasemd bankans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert