Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, hefur dregið sig í hlé og sækist ekki eftir endurkjöri á á aðalfundi í kvöld. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Hjálmar Jónsson, framkvæmdastjóri félagsins, er því einn í kjöri til formanns á aðalfundi BÍ í kvöld.
Þóra Kristín segir í greininni að hún dragi framboð sitt til baka og óski þess
jafnframt að Hjálmar Jónsson sýni það drenglyndi að víkja sem framkvæmdastjóri
félagsins ætli hann að vera í stjórn. Ef ekki væri heiðarlegast að
auglýstur yrði nýr aðalfundur þar sem fleiri geta gefið kost á sér í formannskjöri.