Erfitt að opna í Þórsmörk

Leiðin í Þórsmörk er ófær eftir eldgosið og vatnavexti sem …
Leiðin í Þórsmörk er ófær eftir eldgosið og vatnavexti sem því fylgdu. mats.is

Erfitt gæti reynst að opna veginn fram hjá Gígjökli inn í Þórsmörk meðan eldgos varir enda mikið vatnsrennsli niður Jökulsá. Aðgengi að Þórsmerkusvæðinu, sér í lagi opnun vegarins fram hjá Gígjökli, var til umræðu á fundi í vikunni. 


Fundinn sátu ferðaþjónustuaðilar í Þórsmörk, Skógræktar ríkisins, sveitarstjóra og ferðamálafulltrúa Rangárþings eystra, auk lögregluyfirvalda en fundurinn var haldinn á fimmtudag.

Aðrir möguleikar voru nefndir, til dæmis bygging göngubrúar og akstur á stórum trukkum með ferðamenn yfir Markarfljót. Ljóst er að margir ferðamenn munu koma gangandi yfir Fimmvörðuháls og suður Laugarveg í sumar og því afar brýnt að leysa vegamál hið fyrsta. Var ákveðið að ræða við Vegagerð ríkisins um möguleika á að laga veginn. Erfitt getur reynst að laga stíga og göngubrýr í Þórsmörk og Goðalandi meðan á eldgosinu í Eyjafjallajökli stendur, að því er fram kemur á vef Skógræktarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert