Fimm bílstjórar teknir í vímu í nótt

mbl.is/Júlíus

Nóttin var tíðindalítil hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að öðru leyti en því að þrír ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og einn til viðbótar fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Allir voru ökumennirnir handteknir og tekin úr þeim blóðsýni til rannsóknar.

Þá var einn ökumaður tekinn við sömu iðju, ölvunarakstur, af lögreglunni á Suðurnesjum í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert