„Það mun taka mig mörg ár að byggja upp mannorð mitt á Íslandi á nýjan leik ef það tekst á annað borð, en ég er staðráðinn í að gera mitt besta til þess. Ég geri hins vegar ráð fyrir að grundvallarreglum réttarríkisins verði framfylgt í meðferð þeirra mála sem tengjast hruninu, sem og við afgreiðslu mála almennt hjá Alþingi og ríkisvaldi," segir Björgólfur í bréfinu.
Bréfið er skrifað í tengslum við afgreiðslu Alþingis á frumvarpi um fjárfestingarsamning við Verne Holdings ehf. vegna gagnavers í Reykjanesbæ, en Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs, er einn af stærstu hluthöfum í Verne Holdings. Er bréfið birt sem fylgiskjal með nefndaráliti iðnaðarnefndar Alþingis.
Segir Björgólfur í bréfinu að lögfesting fjárfestingarsamningsins sé nauðsynleg til að af verkefninu verði.
„Uppbygging atvinnulífsins og erlend fjárfesting er nauðsynlegur þáttur í endurreisn íslensks efnahagslífs. Gagnaverið í Reykjanesbæ fer þar fremst í flokki, og það væri stórkostlegur missir fyrir atvinnuuppbyggingu hér á landi ef ekki yrði af verkefninu. Ef persónuleg aðkoma mín stendur í vegi fyrir að unnt sér að veita fyrirtækinu þá fyrirgreiðslu sem felst í samningnum hef ég ákveðið eftirfarandi:
Það er von mín að með þessu sé unnt að tryggja framgang verkefnisins og persóna mín flækist ekki fyrir afgreiðslu málsins," segir Björgólfur í bréfinu.
Iðnaðarnefnd þingsins afgreiddi frumvarpið síðan til 2. umræðu á Alþingi í vikunni og gerir þá breytingartillögu, að ákvæði verði sett inn í lögin um að Novator falli frá arðgreiðslum sem til koma af skattaívilnunum.