Mikil uppstokkun varð í stjórn Blaðamannafélags Íslands á fjölmennum aðalfundi sem haldinn var fyrr í kvöld. Hjálmar Jónsson var kjörinn formaður í stað Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur.
Fjórir nýir fulltrúar voru kosnir í stjórn, Magnús Halldórsson, Egill Ólafsson, Óli Kristján Ármannsson og Erla Hlynsdóttir. Sigurður Már Jónsson og Kristinn Hrafnsson voru endurkjörnir.