Tveir menn á þrítugsaldri voru kærðir fyrir að brjóta rúður í glugga húss Landsbankans á Laugavegi 77 í dag, um það leyti sem kröfuganga verkalýðsfélaganna átti þar leið um.
Slökkviliðsmenn sem tóku þátt í kröfugöngunni tilkynntu um skemmdarverkin og sáu til þess að lögreglan næði af þeim tali.