Skrifað var undir samstarfsamning milli Grindavíkurbæjar og Carbon Recycling International í dag um byggingu á sambyggðri jarðvarma- og eldsneytisverksmiðju að Eldvörpum við Grindavík. Unnið verður að sköpun allt að hundrað beinna og afleiddra starfa sem þjóna munu verksmiðjunni.
Carbon Recycling International vinnur metanól úr útblæstri jarðvarmavirkjana og vetni með rafgreiningu. Fyrirhuguð verksmiðja mun framleiða allt að 100 milljón lítra af eldsneyti, mestmegnis til útflutnings og nýta til þess 50 MW af raforku frá sambyggðri jarðvarmavirkjun. Markmiðið er að öll raforka verði framleidd í verksmiðjunni sjálfri og því ekki þörf fyrir raflínur frá annarri virkjun eða frá dreifikerfi.
Í tilkynningu frá Grindavíkurbæ segir að atvinnustefna bæjarins styðji uppbyggingu umhverfisvænnar atvinnustarfsemi og sköpun hátæknistarfa innan áhrifasvæðis Grindavíkurbæjar. Grindavíkurbær og CRI muni sameiginlega hefja samningaviðræður við HS Orku, þar sem tiltekið verður afhending á orku, gufu, vatni og koltvísýringi.